Hér er skjaldborgin sem þarf að slá um heimilin....
17.2.2009 | 00:08
Fann þetta á heimasíðu Hagsmunasamtaka heimilanna.
Tillaga þessi mun gera það að verkum að gengistryggt húsnæðislán frá því í ágúst 2007 uppá 21.5m stæði í ca. 23m í dag í stað 47-8m.
Tillögur um bráðaaðgerðir vegna efnahagskreppunnar
Eftirtaldar aðgerðir eru byggðar á hugmyndum Hagsmunasamtaka heimilanna um:
- Almennar aðgerðir og leiðréttingu gengis- og verðtryggðra lána
- Afnám verðtryggingar
- Að áhætta milli lánveitenda og lántakenda skuli jöfnuð
- Að veð takmarkist við þá eign sem sett er að veði
- Samfélagslega ábyrgð lánveitenda
Aðgerð #1: Tafarlaus tímabundin stöðvun fjárnáma og nauðungaruppboða heimila
Lýsing: Að lög verði sett sem komi tímabundið í veg fyrir fjárnám og nauðungaruppboð íbúðarhúsnæðis til 1. nóvember 2009 á meðan unnið er í að útfæra aðrar aðgerðir fyrir heimilin í landinu.
Útfærsla: Sjá tillögu til breytinga á lögum um aðför frá Ólafi Garðarssyni.
Aðgerð #2: Leiðrétting á gengistryggðum íbúðalánum (framkvæmt samtímis aðgerð #3)
Lýsing: Gengistryggðum íbúðalánum verði breytt í verðtryggð krónulán.
Útfærsla: Boðið verði upp á að gengistryggð íbúðalán verði umreiknuð sem verðtryggð krónulán frá lántökudegi einstakra lána.
Aðgerð #3: Leiðrétting á verðtryggðum íbúðarlánum (framkvæmt samtímis aðgerð #2)
Lýsing: Verðbótaþáttur íbúðalána verði endurskoðaður frá og með 1. janúar 2008.
Útfærsla: Verðbótaþáttur, frá og með 1. Janúar 2008, takmarkist við efri mörk verðbólgumarkmiðs Seðlabanka Íslands, eða að hámarki 4%. Aðgerð þessi er fyrsta skrefið í afnámi verðtryggingar.
Aðgerð #4: Frumvarp til laga um greiðsluaðlögun og framkvæmd þeirra
Lýsing: Að Alþingi samþykki lög um greiðsluaðlögun sem feli í sér að einstaklingar sem ekki ráði lengur við greiðslur af sínum lánum, þrátt fyrir aðgerðir #2 og #3, eigi kost á að sækja um greiðsluaðlögun þar sem greiðslugeta viðkomandi er metin og viðeigandi ráðstafanir gerðar út frá greiðslugetu og greiðsluáætlunum.
Útfærsla: Nánari útfærsla til umræðu.
Ávinningur af aðgerðum þessum:
- Fjöldagjaldþrotum heimilanna og stórfelldum landflótta afstýrt
- Stuðlað gegn frekari hruni efnahagskerfisins
- Jákvæð áhrif á stærðar- og rekstrarhagkvæmni þjóðarbúsins
- Líkur aukast á að hjól atvinnulífsins og hagkerfisins haldi áfram að snúast þar sem fólk mun hafa ráðstöfunartekjur til annarra útgjalda en afborgana af íbúðum
- Þjóðarsátt um vanda heimilanna vegna efnahagskreppunnar
- Traust almennings í garð stjórnvalda og fjármálastofnanna eflist á ný
Kynnt á opnum fundi Hagsmunasamtaka heimilanna 12. febrúar 2009
Góðar stundir
Erlendar skuldir þjóðinni ofviða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Yndislegi pólitíski maðurinn minn. Ég ætla sannarlega að kjósa þig þegar þú ferð í framboð!
EEEELSKA ÞIG svoooo mikið
SigrúnSveitó, 17.2.2009 kl. 00:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.