Það er mergurinn málsins, þessar aðgerðir snúast um það fyrst og fremst að gera fólki kleift að standa í skilum og þurfa ekki að fara í gjaldþrot eða greiðsluaðlögun.
Því miður er það svo að vegna glórulausrar lánastefnu bankanna síðustu ár fyrir hrun þá eru æði margir sem voru mjög illa staddir fyrir hrun og þá að sjálfsögðu enn eftir hrun, þessu fólki stendur til boða að fara í greiðsluaðlögunar ferli, sem er í endurskoðun og verður endurbætt til muna.
Það eru mýmörg dæmi um fólk sem seldu fasteign sem það átti jafnvel töluverðan pening í, í stað þess að nota peningana í niðurgreiðslu á nýju húsnæði þá voru tekin 90-100% lán til að fjármagna húsnæðiskaupin, en peningarnir sem fengust fyrir fyrri fasteign voru settir í hlutabréf sem svo töpuðust, oftar en ekki voru nýju lánin myntkarfa.
Þá lítur dæmið út einhvernveginn svona.
Seld er fasteign uppá 40 mil. hrein eign var 20, keypt er eign uppá 60 mil. með 90% myntkörfu á gengisvísitölu 125. Lánið er þá 54 millj. 16 mil. eru settar í hlutabréf, 6 mill. í útborgun.
Gengisvísitalan í dag er 234, og lánið stendur því í rúmum 117 mil. afgangurinn af hagnaði sölunnar er floginn út um gluggann og núverandi húsnæði er kannnski metið á ca. 48 milljónir.
Hvað gerist ef fólkið í þessu dæmi nýtir sér úrræði íslandsbanka, lánið er lækkað um rúma 29. mill, eftir standa tæpar 88 milljónir sem verður breytt í ísl. óverðtryggt lán á breytilegum vöxtum í dag 7,5%. af þannig láni þyrfti að greiða að jafnaði allan lánstímann ca. 460þ á mánuði.(reiknvél ísb)
Ef aftur á móti þessu fólki er gert kleift að borga eins og staðan var fyrir hrun, þ.e. í maí 2008, þá er miðað við höfuðstól láns uppá 65 milljónir og greiðslubyrði uppá ca. 215þ að jafnaði allan lánstímann, mögulega lægri ef krónan styrkist meira en hún var í maí 2008.(reiknivél frjálsa)
Þetta er frekar "extreme" dæmi en svona dæmi þekkjast úr bankakerfinu og mörg jafnvel enn verri.
Til lengri tíma litið gera flestir ráð fyrir því að krónan muni styrkjast, og um leið (ef) og hún mun ná niður fyrir það gengi sem miðað er við þá mun skuldari verða var við lækkun höfuðstóls, að öðrum kosti munu koma til afskriftir í lok lánstímans.
Hvað ef fólk vill selja fasteign með svona láni?
Þetta er kannski það sem hefur staðið í hvað flestum, það ætti í raun að vera auðvelt að selja eignir sem hafa verið teknar til endurmats á þessum grunni, þar sem að það er tryggt að afborganir lána fari aldrei hærra en sem nemur hækkun greiðslujöfnunarvísitölu, verðtryggðu lánin, eða hækki uppfyrir gengisvísitöluna sem miðað er við frá því í maí 2008, myntkörfu lánin.
Eignamyndun er kannski ekki aðalmálið, heldur hreinlega það að geta borgað af láninu og missa ekki húsnæðið, skattaskýrslan lítur ekki vel út í augnablikinu, með skuld uppá 65 mill. og eign upp á 40. en það mun lagast til lengri tíma.
Greiðslumat lánastofnana hafa alla tíð miðast við hvað hver og einn getur ráðið við á mánuði, það er nákvæmlega það sem þetta snýst um þegar upp er staðið, ef það er tryggt að afborgun fari ekki upp fyrir ákveðið út lánstímann, þá hlýtur það að teljast söluvænna heldur en það sem hefur verið boðið uppá.
Góðar stundir.
|
Greiðslubyrði allra lána lækkuð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Út í hött......
24.7.2009 | 13:56
Í tíð núverandi meirihluta hafa skuldir bæjarins amk. þrefaldast, úr ca. 700milljónum í tæpa 3 milljarða, til að takast á við þetta er að sjálfsögðu gert það sem íhaldinu fer alltaf best, níðst á þeim sem minnst mega sín....
....skammist ykkar..... Gunnar, Þórður, Sæmundur, Karen og Eydís.....
Góðar stundir.
|
Samningur samþykktur en bæjarstarfsmenn reiðir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Að sjálfsögðu ekki.
11.6.2009 | 15:33
Það er hægt að kaupa hálft lið af toppklassa leikmönnum fyrir þessa fáránlegu upphæð, fyrst að prímadonnan gat ekki hugsað sér að vera lengur hjá stærsta félagsliði í heimi er þetta frábær díll.
Ég skýt á að peningarnir verði notaðir í kaup á Ribery, Bensema (eða hvað hann heitir) og til að ganga frá kaupum á Tevez, eins væri ekki slæmt að fá eins og einn sterkan varnarmann í hópinn í viðbót, Johnny Evans er ekki alveg að gera sig.
|
Engin skelfing hjá United við brotthvarf Ronaldos |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laudrup er á lausu.
11.6.2009 | 00:43

Jæja þetta er orðið gott í bili, það er komin tími til að KSÍ opni budduna og ráði alvöru útlending í þetta jobb, tilraunastarfið með íslenska meðaljóna er ekki að skila árangri.
KSÍ á nógan pening og ætti að sjá sóma sinn í því að fá hingað alvöru þjálfara.
Leikurinn á laugardaginn og þá sér í lagi fyrri hálfleikur var skelfilegur og í dag drulluðu menn gjörsamlega uppá hnakka þeir voru svo lélegir, það þýðir ekkert að kenna hitanum um það var nefnilega sami hiti hjá hinu liðinu, liði sem var ekki uppá marga fiska.
Gunnleifur stóð uppúr í dag, eins og á laugardaginn. Brynjar Björn átti ágæta spretti sem og Emil á köflum í fyrri hálfleik, Arnór var frískur framan af. Pálmi Rafn hvað er hann að gera í landsliðinu, ég er ekki viss um að hann kæmist í kvennalið Vals miðað við frammstöðuna í síðustu tveim landsleikjum. Grétar Rafn úti að s.... mest allan leikinn. Kristján Örn og Sölvi voru ágætir í miðju varnarinnar, en maðurinn fyrir framan þá, gutlarinn úr Bröndby var ekki að eiga sinn besta dag (kannski er hann ekki betri en þetta), frekar en oft áður, eru virkilega ekki til betri miðjumenn en þetta. Jú, alveg rétt það er einn sem spilar í 5. sterkustu deild í evrópu, en Óli Jó er í fýlu útí hann, þannig að hann er ekki einu sinni í hópnum....
Common....
Ég vil sjá veg íslenskrar knattspyrnu sem mestan, þess vegna segi ég að við eigum að ráða alvöru útlending í jobbið.
Ekki einhverja tónahnappa eða sigheila.
Áfram Ísland.
Góðar stundir.
|
Ísland tapaði í hitasvækju |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ef ekki er samið um Icesave
9.6.2009 | 14:38
Er fólki ekki sjálfrátt?
Er einhver sem gerir sér grein fyrir því hvernig hér liti út ef við semjum ekki um Icesave reikningana?
Ekki er ólíklegt að við munum hverfa ein 50-70 ár aftur í tímann, engin mun lána íslendingum fjármagn, fáir munu vilja fjárfesta hér, orðspor okkar sem hyski sem borgar ekki mun fara hraðar um heiminn en sinueldur á heitum vordegi. Þetta gæti bitnað töluvert meir á komandi kynslóðir en það að taka ábyrgð og borga það sem okkur ber.
Jafnframt því á að sjálfsögðu að setja þá sem bera ábyrgð á þessum óköpum í grjótið, Kjartan Gunnarsson, Bjöggana, Sigurjón Árnason ofl.
Það má ekki gleymast að reiknað er með að eignir LI í UK dekki um 75-95% af skuldinni, auk þess sem lánið er í € og £ sem þýðir að þegar gengið styrkist þá lækkar höfuðstóllinn enn meir, þannig að þegar upp er staðið erum við kannski að borga um 10% af upphaflegu fjárhæðinni.
Ekki er ólíklegt að hægt sé að ná því af Bjöggunum og öðrum "víkingum"
Úr því sem komið er held ég að allir ættu að draga andann djúpt og reyna að sjá fyrir sér stóru myndina.
Um leið og (ef) samningurinn er samþykktur af alþingi og undirritaður losnar um 50 milljarða kr. sem LI á í UK sem fer beint inná þetta lán, það lækkar höfuðstólinn strax um tæp 10% fyrir utan að lánafyrirgreiðslur frá öðrum þjóðum fara af stað.
Allt tal um 35-40milljarða vaxtakostnað á ári fyrstu 7árin er í besta falli barnalegt af fyrrgreindum ástæðum.
Góðar stundir.
|
Útlánin eiga að greiða Icesave |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þetta er með ólíkindum.....
7.6.2009 | 18:04
Enn og aftur er gengið fram hjá Jóhannesi Karli.
Eins og uppstillingin var á liðinu í gær var aldrei spurning að við myndum tapa þessum leik, inn á miðsvæðinu voru Stefán Gíslason, Pálmi Rafn og Helgi Valur allt leikmenn úr miðlungsliðum í skandinavíu meðan á bekknum sátu Brynjar Björn og Aron Einar leikmenn úr 5. sterkustu deild í heimi, leikmenn sem eru þekktir fyrir að gefa allt í það sem þeir eru að gera, enda sást það bersýnilega þegar Brynjar kom inná þá gjörbreyttist leikur Íslands, menn fóru að berjast og láta finna fyrir sér.
Það er með ólíkindum að ekki sé hægt að nota menn úr næst efstu deild Englands meðan miðlungsskápar úr Bröndby, Brann og Elfsborg er í byrjunarliðinu.....
.....já og að ógleymdum Bjarna Ólafi Eiríkssyni.... LOL.... ágætis úrvalsdeildarleikmaður á Íslandi en á alls ekki heima í landsliðinu.
Nú detta 5 út úr hópnum fyrir næsta leik og enn er farið í skandinavísku kistuna og náð í leikmenn úr miðlungs eða þaðan af verri liðum og gengið fram hjá Jóa Kalla sem á næsta ári spilar í ensku úrvalsdeildinni, ég veit ekki með aðra en mér finnst vera skítalykt af þessu.
Eitt enn með leikinn í gær, í upphafi var Eiður Smári einn frammi en um leið og Hollendingarnir skoruðu var hann færður til baka og Pálmi Rafn settur fram, semsagt það var enginn senter inná þangað til Arnór kom inná undir lokin.
|
Ólafur kallar á fimm fyrir Makedóníuför |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Ef keyptur er stolin DVD spilari....
23.5.2009 | 18:39
......er eins gott að vera við því búin að skila honum þegar upp kemst um þjófnaðinn, þannig lítur meirihluti þjóðarinnar á gjafakvóta kerfið.
Fiskurinn í sjónum er sameign þjóðarinnar, ekki einhverra fárra útvaldra, því er þetta réttlætismál sem nauðsynlegt er að leiðrétta, núna er tækifærið.
LÍÚ má gráta úr sér augun fyrir mér, sjávarútvegurinn er skuldugur sem aldrei fyrr, menn heimta afskriftir vegna slæmrar stöðu í kjölfar gengishruns, en bíddu við, þegar krónan var sterk vældu þessi grey afþví að þá var afurðaverðið of lágt vegna stöðu krónunnar, nú væla þeir vegna þess að krónan er of veik.
Ég held að þessir menn ættu að finna sér e-ð annað að gera, hér áður fyrr voru gengisfellingar ekki óalgengar til að bjarga sjávarútvegnum, nú er krónan fallinn um 100% og samt væla þeir.
Tökum af þeim kvótann á 20 árum og leyfum þeim að halda áfram að væla.
5% á ári gefur mjög góðan aðlögunartíma, því ættu kvóta eigendur ekki að geta leigt til sín þessi 5% sem þeir missa til baka á kannski 50-75kr. kílóið, fyrst að þeir ætlast til þess að leiguliði sem leigir af þeim í núverandi kerfi á 175-225kr. kílóið skili hagnaði....???
Litla greyið í Vinnslutöðinni í eyjum heldur því fram að einungis standi eftir 1,9kr af hverju kílói þegar allur kostnaður hefur verið greiddur, samt þurfa þeir ekki að leigja til sín kvóta, er virkilega einhver sem trúir þessu bulli.....???
Ef þetta er satt hvernig ætli kvótalausi útgerðarmaðurinn standi þá....??
Góðar stundir.
|
„Eigandinn heldur áfram að borga“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Hvaða rugl er þetta......
27.4.2009 | 14:14
Það sést greinilega á sjónvarpsmyndatökum að Carrick er á undan í boltann, það sést vel á þessu videoi, 2,09 min. Tottarar verða bara að sætta sig við að þetta var víti og að MU voru miklu í betri í seinni hálfleik, Man Utd hefðu sennilega unnið hvort sem Webb hefði dæmt víti eða ekki.
Frábært lið.
|
Jenas: Webb kiknaði undan pressunni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Hvalfjarðagöngin.
23.4.2009 | 11:30
Það er einkennileg kosningabaráttan sem Sjálfstæðisflokkurinn rekur hér í NV-kjördæmi, það virðist vera þeim mikið kappsmál að benda á hvað aðrir flokkar hafa gert eða ekki gert í stað þess að auglýsa sig og sýna stefnu.
Frábært dæmi um þetta er auglýsing sem þeir hafa á bíl hér í bænum, með mynd af Guðbjarti Hannessyni og öðru Samfylkingarfólki við Hvalfjarðagöngin í síðustu kosningabaráttu með spurningunni "Hvar eru gjaldfrjálsu göngin Gutti?"
Í þessu tilefni er kannski rétt að benda á hverjir stoppuðu það mál.
Í stjórnarsamstarfi D og S var í þrígang reynt að koma þessu í gegn en alltaf stoppaði það á SJÁLFSTÆÐISFLOKKNUM, þingmönnum D lista í kjördæminu meðan allir aðrir þingmenn kjördæmisins voru hlynntir því að afnema gjaldið.
Rökin voru þau að ekki mætti afnema gjaldið þar sem að þá væri búið að koma í veg fyrir gjaldtöku í öðrum göngum í framtíðinni, svo sem Vaðlaheiðargöngum og Norðfjarðagöngum.
Þannig að þeim frambjóðendum D lista sem spyrja að þessu ættu kannski frekar að spyrja sína eigin þingmenn hvar gjaldfrjálsu göngin eru.
kv.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þorsteinn Erlingsson orti.
22.4.2009 | 12:47
"Því sá sem hræðist fjallið
og einatt aftur snýr
fær aldrei leyst þá gátu
havð hinum megin býr"
Þetta hljómar eins og ESB andstæðingarnir sem ekki treysta sér á fjallið til að sjá hvað leynist hinu megin....
Góðar stundir



